Af mér og mínum.....
Published fimmtudagur, október 06, 2005 by Lavi | E-mail this post
Var að koma frá sjúkraþjálfanum. Hann telur líkur á því að um brjósklos sé að ræða. Vill þó meina að það sé ekki næganlegt til þess að ég verði sendur í skurð. Á að koma aftur á morgunn í tog. Pollýanna hefur þó séð það svartara enda er þetta í þriðja skiptið sem lonsnar um brjósk í bakinu á mér.
Annars er bara bjart yfir þessa dagana.
Dóttir mín markmaðurinn varð Reykjavíkurmeistari um þarsíðustu helgi. Voru foreldrar hennar ansi stoltir af stúlkunni þegar hún sem fyrirliðinn gekk fram og tók við bikar fyrir hönd liðsins. Hún stóð sig frábærlega og var stór þáttur í sigri liðsins í úrslitaleiknum. Varði 12 skot hvorki meira né minna.
Spúsa hefur nú lokið fyrsta áfanga af þremur í löggildingunni. Fékk 8 á prófinu.
Hún var nú nokkuð örugg með að henni hefði gengið bærilega og maðurinn hennar hafði svo sem ekki áhyggjur. Hann hefur ávallt fulla trú á sinni konu.
Lavi minn, ertu lasinn?
Isskan.
stórkostlegt kvenfólk í þinni fjölskyldu.
ég elska þetta word verification dæmi, það hvetur mig svoleiðis til að kommentera hjá þér.
Í dag fikk ég t.d. Wuusl (sem ég er að hugsa um að taka upp sem nýyrði).