Ertu þá farinn....?
Published þriðjudagur, september 27, 2005 by Lavi | E-mail this post
Innlent | mbl.is | 27.9.2005 | 10:45Síðasti ríkisstjórnarfundur Davíðs
Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, sat í morgun sinn síðasta ríkisstjórnarfund en hann lætur af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi síðar í dag. Af þessu tilefni var kaka á borðum ríkisstjórnarinnar þegar hún kom saman í Stjórnarráðinu í morgun. Davíð hefur verið ráðherra samfellt frá árinu 1991, fyrst forsætisráðherra en utanríkisráðherra frá því í september á síðasta ári.
Húgra, húgra, húgraaa....
Vá, það hlýtur að vera allt í messi í Sjálfstæðisflokknum! Ég sé þau fyrir mér hlaupandi um eins og höfuðlausar hænur.
Davíð og Saddam eiga það sameiginlegt að hafa hlotið 99% atkvæða í kosningum, Davíð í flokknum og Saddam í Írak. Ég held að einn Armeni hafi náð svipuðu.
Mindboggling.
Ég held ég viti hvaða aðferðir Saddam notaði til að ná sínu fylgi ...
Annars er þetta kallað meðvirkni á fínu máli. Enginn þorir að mótmæla og allir fegnir í laumi yfir að þurfa ekki að taka ábyrgð.
Eða með öðrum orðum : Húrra húrra húrra