Borgmyrkvinn mikli
Published fimmtudagur, september 28, 2006 by Lavi | E-mail this post
Þá er búið að kveikja á Reykjavík aftur á ný og má segja að athæfið hafi verið bærilega heppnað. "Lítið sást þó til stjarna á mestöllu höfuðborgarsvæðinu vegna skýja en mikil ró og fegurð færðist yfir borgina og fallegar skuggamyndir urðu til" sagði mogginn en Vísirinum fannst merkilegast að "einnig hefur verið mikið um hópasöfnun unglinga víða í borginni í kvöld".
Ég fór út í Geldinganes með dóttur minni þar sem við horfðum á báðar stjörnurnar sem sáust í gegnum skýjahuluna. Fannst þó skrýtið að þegar meirihlutinn reynir að slökkva ljós til þess að eyða þá séu einhverjir semhlaupi út og skjóti flugeldum.
Annað var það ekki........
Alltaf missi ég af öllu svona. Af hverju slökktu allir ljósin?
Slökkvi ljós til að eyða? Eyða hverju?
Ekki bara ganga út frá að alheimur viti það þegar maður hefur alþjóðlegan lesendahóp!
Ljósin voru slökkt í tilefni setningar kvikmyndahátíðar.
Þetta er í besta falli eitthvað sem má gera grín að í áramótaskaupinu.