Gítarinn minn.....hann er minn en ekki þinn!
Published laugardagur, september 09, 2006 by Lavi | E-mail this post
Titill þessi er stolinn frá félaga mínum sem samdi einu sinni lag. Ástæðan fyrir honum er sú að ég hef verið upptekinn við nýja gítarinn minn undanfarnar vikur. Hef meiri áhuga fyrir honum en bloggi alla vegana þessa dagana. Það gengur meira að segja svo langt að nú hef ég byggt upp myndarlegasta sigg á fingurgómum vinstri handar. Fyrir ykkur sem vitið ekki þá þykir sigg á fingurgómum mikill kostur þegar maður spilar á strengjahljóðfæri. Það er nefnilega frekar vont að spila lengi á gítarinn nema þú sért kominn með sigg. Þannig að næst þegar þið sjáið einhvern frægann gítarleikara. Spyrjið hann hvort hann sé með mikið sigg á gómunum. Og núna spila ég á gítarinn......
0 Responses to “Gítarinn minn.....hann er minn en ekki þinn!”
Leave a Reply