Hreðarvatnsskálavalsinn er skemmtilegur tangó.
Published þriðjudagur, október 18, 2005 by Lavi | E-mail this post
Einhver hefði haldið að vegna anna væri ég ekki búinn að blogga en það er nú aldeilis ekki. Ég hef bara ekki haft neitt skemmtilegt eða fréttnæmt að segja frá. Ég er hins vegar kominn með áhyggjur af því að missa þessa fáu en dyggu lesendur sem þó hafa nennt hingað til að fylgjast með lífi fyrrverandi fitubollu. Það gengur sem sagt vonum framar í ræktinni. Nálgast nú óðfluga tveggja stafa tölu. Nokkuð sem ekki hefur sést í mínum ranni síðan enn var hægt að fá sér Miranda og smakk í Kjalló. Hef lofað þeim tveimur sem ábyrgir eru fyrir mínu léttara lífi sem og einkaþjálfanum mat á veitingahúsi í byrjun næsta mánaðar og þá verð ég að vera komin í tveggja stafa tölu. Læt ykkur vita hvernig gengur og lofa öðrum pistli fljótlega.
Annað var það ekki........ og þó:
Þegar börn eru á leiðinni þarf að huga að mörgu.Og ef þetta er ekki eitthvað sem sumar systur mínar myndu nota!Fyndið og áhugavert.Lengsta urlið á netinu er: http://llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch.co.uk/Ó men æ jöst lov mæ línks....
Hreðarvatnsskáli? Mikið að þú segir ekki bara Hreðjavatnsskáli!
Ókei, búin að skoða linkana.
Mér fannst skórnir að sjálfsögðu kúl. Einkar notadrjúgir að nóttu þegar maður læðist fram í eldhús til þess að fá sér miðnætursnarlið sem að sjálfsögðu er geymt Á GÓLFINU!!
Mest heilluð var ég þó af Llanfairlididdelídósillígógochstiríbúmm.