1 comments
Published miðvikudagur, júlí 13, 2005 by Lavi.
Ég er farinn í sumarfrí. Verð
hér næstu tvær vikurnar.
Skil eftir nokkra linka til skemmtunar á meðan.
KúlSönnunin fyrir Tutlu (Tekur tíma, bíða þolinmóð)
Fyndið
1 comments
Published sunnudagur, júlí 10, 2005 by Lavi.
Eftir að undirheimaskáldið Stefán Máni upplýsti um meinta kókaínnotkun þingmanna urðu skyndileg uppskipti á ríkistjórn íslendinga. Hin nýja stjórn tók við völdum í gærmorgun og mun sitja til loka kjörtímabilsins.
1 comments
Published miðvikudagur, júlí 06, 2005 by Lavi.
Það er kominn júlí í vinnunni hjá mér. Það þýðir að bæjarstarfsmenn Kópavogs flykkjast í sumarfrí hver á fætur öðrum og við sem vinnum við að þjónusta þá sitjum og borum í nefið. Eða svona næstum því. 2 dagar þangað til að ég kemst í frí. Og þá fer ég til Spánar. Rúmlega 30 stiga hiti og glampandi sól hljómar ekki illa. Reyndar hefur fólk verið að bísnast yfir því að við skulum út á þessum tíma ársins. "Heitasti mánuðurinn, eruð þið brjáluð". Ég vinn hins vegar á skrifstofu sem er gædd þeim eiginleika að þar hreyfir ekki vind. Hún er uppfull af tölvum og skjáum sem eru í gangi allann sólarhringinn og gefa frá sér mikinn hita. Meðalhiti er í kringum 30+ og undir rós gegnur hún undir nafninu Club Tropicana. Ég er því vanur hitanum og kvíði engu.
Fór á Duran tónleikana sem haldnir voru í Egilshöllinni. Ætlaði ekki að fara en bauðst miði á góðum prís og sló til.
Var boðið í upphitunarpartý á undan þar sem leikin voru 80's lög af vínilplötum með rispum og öllu. Er ekki frá því að blaðamenn Séð og heyrt hefðu nú öfundað mig þar sem að í veislunni var valinnkunnur skrýllinn. Helstu poppstjörnur þjóðarinnar, alþingismenn, leikarar, sjónvarpsstjörnur og íþróttamenn á heimsmælikvarða og ég. Gestgjafarnir útdeildu kveikjurum svo að enginn myndi klikka á "Save a prayer" fílingnum. og síðan var rennt í Egilshöllina.
Þegar þangað var komið sá ég að ég þekkti ég c.a. 1000, kannaðist við 3000 og hinir 6000 voru ansi kunnulegir. Nokkrir algjörlega búnir að gleyma sér í nostalgígjunni. Mættu í stuttum jakka með uppbrettar ermar, blásið hár og með gloss.
Tónleikarnir voru síðan ansi vel heppnaðir. Fínt sánd, bandið mjög vel spilandi og frábær stemming. En..... eins og allir alvöru áhugamenn um tónlistartímabil kennt við Nýróman þá fannst mér eingöngu fyrstu tvær plötur bandsins vera góðar og nú 20 árum seinna þá man ég út af hverju. Það eru bara leiðinleg lög á seinni plötunum.
Sem sagt, fínt sánd, bandið mjög vel spilandi frábær stemming en leiðinleg lög. Og nú bíðum við bara eftir því að Nick Cersaw Taki upp þráðinn að nýju. Ef að það gerist þá geri ég ráð fyrir að Skottan komi heim.
Reyndar er þetta í annað skiptið nú í sumar að ég bregð undir mig tónleikafætinum í Egilshöll.
Fór með syni mýnum á frábæra tónleika Iron Maiden. Skemmtum okkur í einu orði frábærlega.
Uppnuminn af þeim tónleikum stofnuðum við síðan "Þungmálmsbandið Sveinbjörgu" í tilefni af afmæli mágkonu minnar og svila og gáfum út plötu og boli
7 comments
Published mánudagur, júlí 04, 2005 by Lavi.
Fann þessi
skemmtilegheit á netinu. Og ef þetta var ekki nóg þá ætti
þessi að bæta um betur, enda danskur.
Gleymdi mér yfir þessum
hérna og ætla að kaupa einar
svona á Spúsu.
1 comments
Published laugardagur, júlí 02, 2005 by Lavi.
Það var einu sinni ungur maður sem sat fyrir framan vídeótækið sitt og tók upp tónleika sem haldnir voru til styrktar hungri í Afríku og í fyrsta skipti í sögu sjónvarpsins voru sýndir í beinni útsendingu. Nú 20 árum seinna situr hann enn fyrir framan sjónvarpið sitt og upplifir sömu stemminguna og fyrir 20 árum. Ótrúlegt framtak. Hvet ykkur til þess að skrifa undir
áskorunina og að gerast
heimsforeldrar.
Annað var það ekki......