Jamustafa, jamustafa
Published föstudagur, mars 18, 2005 by Lavi | E-mail this post
Kannast hlustendur við lagstúfin Jamústafa. Þessi stúfur hefur nú fylgt mér í gegnum daginn, hvernig sem stendur á
því.
Jamústafa jamústafa
allir sungu jamústafa
en hvað það þýddi, hann ei vissi neitt
hann ........
Ef glöggir hlustendur vita meira um lagið hvet ég til skoðanaskipta.
-----
Annars er ég nývaknaður af kveldblundi. Vaknaði upp af værum draumi og gat ómögulega sofnað aftur. Flykktist því framúr til þess að ath. hvort internetið mitt væri komið í lag. Og sjá það er upprisið. Komst nefnilega að því mér til skelfingar að netið mitt væri úti í morgunn. Reyndar kom það sér vel þar sem ég notaði daginn til þrifalegri hluta en eyðilagður var ég.
-----
Fróðleikur dagsins:.
-----
Nokkrar spurningar hafa verið að hrjá mig undanfarið.
Hver fann upp gaffalinn?
Var hann svona pjattaður?
Ég spyr?
-----
Konan mín fullyrðir að ég sé kominn með grátt í skeggið. Finnst það helvíti hart að vera kominn með grátt í skeggið. Ekki að ég hafi áhyggjur af gráum hárum en skítt að maður sem hefur aldrei fengið að vera með skegg sé nú kominn með grátt í það.
-----
Snilld-----
Annað var það ekki......
0 Responses to “Jamustafa, jamustafa”
Leave a Reply