Fimmturdagur:
Þá sit ég hér og blogga. Konan mín stendur í eldhúsinu og hræri í vöfflur fyrir manninn sinn. Ég þarf nefnilega að sjá um vöfflukaffið á morgun í vinnunni. Og þegar konan manns hrærir deig fyrir mann notar maður tímann og skrifar fyrir hannar hönd til Rússlands. Konan mín á nefnilega nýja vinkonu í Rússlandi sem vill selja henni nýjan
hund.
Sunnudagur:
Fór lítið fyrir bloggun fimmtudagskvöldið að tarna. En nú er vert að segja frá helginni. Hunkaðist við staurinn á nýjum bíl. Mikið getur verið gott að vera á nýjum bíl. Svo maður tali nú ekki um nýjan bíl með góðum græjum. Á rúntinum með úmbmm úmbmm úmbmm í græjunum. Ekki lítill taxicabhunk.
"Góða Kvöldið" sagði ég glaðlega þegar þau stigu inn í bílinn. "Það held ég nú" sagði karlmaður á fertugsaldri. "Mikið er ég feginn að þú stoppaðir" botnaði samferðakona hans. "Ég hefði ekki getað gengið metar í viðbót á þessum hælum" hélt hún áfram. "Og hvert erum við að fara" sagði ég. "Lautarsmára 43". Ég lagði á stað og keyrði í áttina að Kópavogi. Áður en ég var kominn fram hjá Iðnó voru farþegar mínir komnir í innilegar samræður.
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: ahahahhh ulliulliulli
Hún: Uhuh ulliulliulli
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, mikið ótrúlega er gott að kyssa þig, ulliullliullli
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmm
Hann: Uhmhmhmhhmh
Hún: ahhhh, uhhmmmmmslurpi ulliulliullli
Ég stöðvaði bílinn. ´"1860 takk"
Hann rétti pening í áttina að mér "eigðu afganginn".
"Þakka þér" sagði ég og ók af stað. Stuttu seinna fékk ég selebrity inn í bílinn. En það er önnur saga sem sögð verður seinna.
Missið ekki að því..........
oj. ég get ekki séð sjarmann í að vera taxicabhunk á svona túr. ulliulliulli. ussuss.
en glöð er ég að lesa þig, hef saknað þín.
Það er subbó að slumma í taxa,
sagðún og tugði sitt gúm,
gerði sig klára í að faxa,
tvö borð svona rétt fyrir groom.
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.