2 comments
Published mánudagur, október 16, 2006 by Lavi.
VÍSIR.IS » Fréttir » Innlent: " NFS, 16. Október 2006 12:42
Vill banna hesta í framsæti bifreiða
Í lesendabréfi í Vesturlandsvefnum Skessuhorni segir frá því að legið hafi við stórslysi í Melasveit í Borgarfirði, á dögunum, þegar bíll ók inn á veginn, þvert í veg fyrir aðra bíla. Í þessum bíl reyndist vera kona sem hafði meðalstóran hund í kjöltu sér, og virtist hafa litla stjórn á ökutækinu, enda hundurinn allur á iði.
Höfundur bréfsins hringdi í lögregluna til þess að kanna málið, og var tjáð að ekkert í umferðarlögum bannaði fólki að hafa gæludýr í fangi sér við akstur. Bréfritari telur, í ljósi þessarar reynslu, að líklega vanti einhver ákvæði í umferðarlög.
Mætti þar t.d. nefna ákvæði um að bannað sé að stunda stjörnuskoðun samhliða akstri; bannað sé að hafa fleiri en 12 lausa grísi í hverjum fólksbíl, bannað sé að hafa fleiri en 30 óða ketti í hverjum bíl og bannað sé að hafa hest í framsæti bifreiðar nema hann sé í beisli. "
Annað var það ekki...........
Þá er rjúpnaveiðitímabilið hafið með tilheyrandi
útköllum hjá hjálparsveitunum. Strax á fyrsta degi þrjú útköll. Skytturnar þrjár skiluðu sér þó allar til byggða heilar áður en til stórátaka kom.
Annað var það ekki......
0 comments
Published laugardagur, október 14, 2006 by Lavi.
Á meðan ég herði mig upp í að skrifa ferðasögu frá Króatíu kætir mig að næsti framkvæmdastjóri SÞ skuli heita
Banki. Ekki ólíklegt að
Garður litli Guðmunds verði sá sem taki við síðar.
Annað var það ekki.....
0 comments
Published miðvikudagur, október 04, 2006 by Lavi.
Þetta finnst mér fyndið.
Annað var það ekki..........