Glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir því að ég hef ekkert bloggað síðan síðast. Hefur það með líkamlegt ástand mitt að gera undanfarna daga. Lagðist semsagt í inflúensu eina og lagði sú arna gerpinn flatann í rúmið. Í móki á þriðja sólahring og er í raun ekki orðinn góður enn. En hvað um það í veikindum mínum hefur fiskimánuðurinn verið lagður á hilluna þar sem veikir menn þurfa kók og súkkulaði.
Núverandi ástand:
Almennt ástand: Frekar sloj en þó fallegur og fínn.
Yfirgefin kíló: 5
Æfingafjöldi: 0
Spennandi tímar framundan.
Ekki missa af því.
ég næ ekki hvernig gátu farið 5 kíló á kóki og súkkulaði. Var það eitt kók og ein súkkulaði?
Mæling fór fram eftir tveggja daga óráð og svitaköst. Gæti verið ónýt vikt. Hver veit ??
Málið er nú þannveginn vaxið að maður einhvern veginn lekur út kílóunum í svona flensu... tvö fóru frá mér en eru komin aftur til mín blessuð, svona eftir að ég komst til heilsu, meðvitundar og horleysis. Þá smakkast einhvurnveginn súkkulaðið betur.